Markaðsfræði er hluti af daglegu lífi fólks og hefur áhrif á hegðun einstaklinga, smekk þeirra, óskir og ákvarðanir. Margir halda að markaðsfræði snúist aðallega um auglýsingar, að villa um fyrir fólki eða beita það þrýstingi til þess að kaupa hluti sem það þarf eða vill ekki.
Rétt er að tilgangur árangursríkrar markaðssetningar er fyrst og fremst að þróa og koma á framfæri vörum og þjónustu sem fullnægja þörfum viðskiptavina og mynda farsælt viðskiptasamband til frambúðar.
Markaðsfræði: Leiðarvísir að árangri fjallar um helstu þætti markaðsfræðinnar: söluráðana, kauphegðun viðskiptavina, markaðsmiðun, staðfærslu, mörkun, stafræna markaðssetningu, markaðsrannsóknir, kaupferlið og margt fleira. Í bókinni er fjöldi dæma og útskýringa sem auðvelda skilning og gera lesturinn ánægjulegri.
Það sem þú lærir í þessari bók:
Hvað fær fólk til að kaupa.
Söluráðarnir sjö og samspil þeirra.
Markaðshlutun og val á markhópi.
Staðfærsla, mörkun og munurinn þar á.
Markaðsrannsóknir og helstu aðferðir þeirra.
Ýmis hagnýt hugtök og aðferðir í markaðsfræði.
Athugið að þetta er önnur útgáfa af Markaðsfræði: Leiðarvísir að árangri (2026). Bókin var fyrst gefin út árið 2024.

